Tuesday, January 10, 2006
Ekki er laust við að maður fari að hugsa í upphafi nýs árs, hvert veröldin stefni og hvert maður ætli með líf sitt.... nei ég er nú bara að bulla, vissi ekkert hvernig ég ætti að byrja.. :) En maður er aftur mættur í borg óttans eftir hin ágætustu jól og áramót heima hjá mömmu og pabba. Reyndar náði maður ekki mikið að dveljast hjá þeim því að við í W.R. spiluðum bæði á annan í jólum á Reyðarfirði og svo á Egilsstöðum á gamlárs svo það var nóg að gera að koma því öllu í kring. Ballið á Egilsstöðum var nú öllu betra af okkar hálfu og var mikið stuð bæði á okkur og þeim 400 sem sáu sér fært að mæta.
En eins og ég sagði er maður aftur kominn í breiðholtið og farinn meira að segja að æfa stíft, fór í ræktina í gær klukkan 08:05 !!! sem er ekki beint kristilegur tími fyrir fólk að stunda æfingar en það var nú samt bara mjög fínt. Þegar ég var búinn að skokka svona í tuttugu mínútur heldurðu að mæti ekki á svæðið sjálfur Jóhannes í Bónus og fari að rölta við hliðina á mér. Ég var nú reyndar hissa á því að hann væri ekki með líkamsræktarstöð í kjallaranum hjá sér þar sem hann hefur nú líklega alveg efni á því.
Ég sé ekki fram á að eiga eftir að vera heima hjá mér eina einustu helgi í vetur því að núna eru þorrablótin að byrja með stórhljómsveitinni Nefndinni! og þegar því lýkur í febrúar þá verður maður hverja einustu helgi í fótboltaveseni í staðinn, sem er kannski bara fínt því þá minnkar bumban kannski aðeins ;)
Einhvernveginn hef ég ekki í mér að skrifa meira í bili þannig bara, góðar stundir...
Bergmann kveður, út..
Posted at 1/10/2006 1:08:20 pm by andribergmann
Permalink
Wednesday, December 14, 2005
When you walk through a storm...
Já þetta eru upphafsatkvæðin í þjóðsöng Liverpool manna eins og allir vita og ástæðan fyrir því að ég rita þessi fögru orð er sú að stefnan hefur verið tekin á Anfield Road heimavöll Evrópumeistaranna á ári komandi. Við félagarnir höfum ákveðið að fara á leik Liverpool og erkifjendanna í Everton þann 25. mars næstkomandi og er öllum velunnurum velkomið að slást í hópinn. Við erum búnir að reikna það út að þetta verður einmitt leikurinn sem Liverpool tekur toppsætið af Chelsea í deildinni svo þetta verður svakalegur leikur.
Ekki verður það meira að sinni þar sem ég verð aðeins að fara að róa mig í söngnum, því ég er búinn að syngja You´ll never walk alone í hálftíma við lítinn fögnuð nágranna.
Bergmann kveður að sinni, út...
Posted at 12/14/2005 12:38:36 am by andribergmann
Permalink
Friday, December 09, 2005
Já ekki er Andrinn nú dauður úr öllum æðum enn. Sit hérna sallarólegur a brókinni fyrir framan tölvuna og slæ inn þessa stafi.. Það er nú ýmislegt sem á daga manns hefur drifið þessa þrjá mánuði í höfuðborginni.
Til að mynda erum við Hvalur (haffi valur) á fullu að taka upp nýja lagið okkar hjá Þorvaldi Bjarna og gengur bara fínt, ég er búinn að kaupa mér nýjan gítar sem átti að kosta 280.000 kr. en ég borgaði ekki alveg svo mikið fyrir hann. Ég á nánast allt sem við kemur upptökum á tónlist svo ef þið viljið meika það þá hafiði samband við mig!! Ég má eiginlega ekki skrifa hérna lengur þar sem takkahljóðið fer eitthvað í hana Lísu mína en ég skal reyna að vera sneggri með annað blogg......
Já og endilega tjáið ykkur í skemmtilega undrið hérna fyrir neðan..
Bergmann kveður, út..
Posted at 12/9/2005 1:16:47 am by andribergmann
Permalink
Fyrsta skipti eftir mörg ár
Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt
Posted at 12/9/2005 1:05:50 am by andribergmann
Permalink
Tuesday, August 23, 2005
...hve loga lj—s ß’n str¾ti. o.s.frv. j‡ ekki ber ‡ šÝru en undirritaÝur og frœ sŽu komin til hšfuÝborgarinnar meÝ allt sitt hafurtask, reyndar ßegar viÝ lšgÝum af staÝ ‡ Lj—na ߇ ‡tti Žg ekki nema tv¾r tšskur og einn g’tar en fršken El’sabet var meÝ gott betur en ßaÝ, svo ekki sŽ meira sagt.............
Annars gekk ferÝalagiÝ —trœlega flj—tt fyrir sig sem betur fer en ßaÝ eru ekki nema tv¾r vikur ßangaÝ til maÝur ßarf aÝ gera ßetta aftur ßegar viÝ fšrum ‡ l’su b’l suÝur..
ƒg er ‡ fullu ßessa dagana aÝ leita mŽr aÝ vinnu hŽr ‡ hšfuÝborgarsv¾Ýinu og hefur mŽr boÝist starf ’ mœrverki og ef til vill ’ t—nlistarsk—la.. er svona aÝ tŽkka ßetta.. Annars verÝur bara m‡liÝ aÝ l‡ta t’mann l’Ýa til 15 ßv’ ߇ fer maÝur ’ sk—lann...
ƒg hef einnig ‡kveÝiÝ aÝ leggja niÝur frekari skrif um heilsu‡takiÝ sem Žg ¾tlaÝi aÝ hafa vikulega upplàsingar um sškum skorts ‡ upplàsingum.......
n—g um ßaÝ ’ bili, Andri kveÝur, œt....
Posted at 8/23/2005 10:41:15 pm by andribergmann
Permalink
Tuesday, August 16, 2005
Já ekki ber á öðru en að það styttist óðum í það að maður yfirgefi austfirska grundu og flytjist í Reykjavík Helvíti.. En hver veit nema það verði síðan bara fjör.. Verð reyndar að spila alveg þangað til, þ.e.a.s. á kaffi khb í kvöld þriðjudagskvöld, og á föstudaginn og síðan á ormsteiti á laugardagskvöldið, svo að maður missir af menningarnótt í borginni sem er mjög slæmt.. en í staðinn fer maður þá bara á stórdansleik með Valgeiri Skúla og félögum í Austurland að Glettingi.
Síðan er það nýtt í fréttum að ég er farinn að geta æft fótbolta á nýjan leik.. og hver veit nema A.B. láti sjá sig í einum leik eða svo áður en tímabilið klárast.
Aukakílóin eru hægt og sígandi að renna sitt skeið þannig að hægt er að sleppa öllu galtar-tali sem ég álít algjörlega óviðeigandi ;)
Ég auglýsi síðan hér með eftir bassaleikara á lausu þar sem okkar ástkæri Ragnar Jónsson með meiru mun ekki fylgja okkur félögum til Reykjavíkur.
Meira er það ekki í bili
Bergmann kveður, út...
Posted at 8/16/2005 4:33:09 pm by andribergmann
Permalink
Saturday, August 06, 2005
Ekki ber á öðru en að undirritaður sé nánast orðinn of-virkur í bloggheiminum þar sem að með þessari færslu er ég kominn með tvö blogg á rúmum tveim vikum!!
En það er helst í fréttum að ég var í þessum töluðu orðum að koma af leik Hugins og Leifturs/Dalvíkur og er skemmst frá því að segja að Huginn rúllaði upp þessum leik 7-1 og hefði getað farið 15-1. Annað er það í fréttum að ég er að fara að spila á Reyðarfirði í kvöld, eitthvað sem ég græt ekkert af gleði yfir en maður verður víst að safna sér peningum áður en maður heldur í helvítis höfuðborgina.... Lísa er líka alltaf svo ánægð þegar ég fer eitthvert að spila...
Barátta mín við aukakílóin er formlega hafin þar sem ég er farinn að geta hreyft mig aftur og mun ég verða með vikulegt uppgjör á stöðu mála í þessari baráttu alveg þangað til kjörþyngd er náð..
Bergmann kveður að sinni, út..
Posted at 8/6/2005 7:47:46 pm by andribergmann
Permalink
Friday, July 22, 2005
Ekki er nema um það bil tæpt hálft ár frá því ég hreyfði eitthvað við þessari blessuðu síðu en ég er mættur aftur sterkari sem aldrei fyrr.
Ýmislegt hefur breyst frá því ég síðast skrifaði t.d. bý ég á Seyðisfirði, vinn á Egilsstöðum, fór suður í aðgerð, get ekki spilað fótbolta, fékk inni í skóla fyrir sunnan, hef þyngst um 4 kg, og svo víðere.. en allavega hefur ekkert breyst með það að ég er í stuði!!!
Reyndar ekki það miklu að ég nenni að skrifa mikið meira í bili enda var ég að koma úr golfi og líka að ég býst ekki við að margir lesi þetta þar sem ekki mikið hefur verið ritað á síðustu misserum og ég kominn úr ritþjálfun, eeenn allavega nóg að sinni....
Bergmann kveður að sinni.. Út..
Posted at 7/22/2005 12:01:29 am by andribergmann
Permalink
Thursday, February 17, 2005
Veikindi, leiðindi og fátækt..
Ekki ber á öðru en undirritaður sé búinn að liggja í rúminu frá því á þriðjudaginn með hita og læti.. Að vera veikur er eitt það leiðinlegasta sem maður kemst í.. Fyrsti dagurinn er kannski ekki svo slæmur, bara borða nammi og horfa á dvd og svona, hafa það huggulegt, en svo ef þetta helvíti dregst eitthvað á langinn framá annan og ég tala nú ekki um þriðja dag, þá er það svo drepleiðinlegt að ég veit bara ekki annað eins. Ég var orðinn svo þungt haldinn af leiðindum á tímabili í dag, að ég settist niður með einhverja krossgátubók sem móðir mín á og starði undrandi á hana í góðar 20 mínútur því ekki gat ég komið einum einasta staf niður í bókina.. Þessi krossgátubók hefði alveg eins getað verið á sanskrít eða svahílí því ég fann ekki eitt einasta orð útúr þessu.. og síðan eftir þessar 20 mínútur fletti ég og fór að tengja saman tölustafi, 1-2 og svo 2-3 o.s.frv. og endaði með þennan fína gíraffa í sundlaug ?? gæti reyndar hafa gert einhver mistök en held samt ekki..
Annars byrjaði vikan nú ekki gáfulega hjá mér. Það var hringt í mig klukkan tuttugu mín. yfir 4 á mánudaginn og ég spurður að því hvort ég væri ekki að gleyma einhverju... ég renndi í fljótheitum yfir það sem ég ver líklegur til að gleyma, nei ekki var það fótboltaæfing og ekki átti ég að vera að spila einhversstaðar.. svo ég sagði bara, nei ég held ekki... þá kynnti manneskjan sig og þá var ég svona illilega að klikka á tannlæknatíma.. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég fór í skoðun til tannlæknis núna snemma eftir áramótin og kom þá í ljós að ég var með hvorki meira né minna en 7 skemmdar tennur!!!! 7 kvikindi!!! ég sem aldrei hef verið með meira en 1-2 skemmdar í einu var allt í einu með 7 stykki skemmd.. þá voru þetta einhverjar gamlar fyllingar sem voru orðnar lélegar og voru með skemmd undir.. Ef þetta er ekki glæpastarfsemi þá veit ég ekki hvað.. Og fyrir þetta viðhald á tönnunum í mér þ.e.a.s. annað skiptið með sömu tennurnar í viðgerð þurfti ég að borga litlar 60 þúsund krónur.. Svo ég held að næst á dagskrá sé bara falskar tennur svo maður þurfi ekkert að hafa áhyggjur af þessu meira..
Ekki verður það meira að sinni, kveð úr fátækt og eymd.
Andri kveður, út...
Posted at 2/17/2005 4:22:44 pm by andribergmann
Permalink
Wednesday, February 09, 2005
Já ekki er hægt að segja annað en að maður sé mjög almennt virkur í blogginu þessa dagana.. Hluta ástæðunnar er að rekja til þess að foreldrar mínir eiga held ég frumgerðina frá microsoft af heimilistölvu með interneti og tekur þar af leiðandi um það bil 3 daga að fá hverja síðu sem maður velur upp á skjáinn til sín, og þar af leiðandi forðast ég það eins og heitan eldinn að fara í þessa tölvu, bara svona rétt til þess að halda andlegu jafnvægi, þar sem ég er ekki alveg þolinmóðasti maður í veröldinni.... :)
Þess vegna í þau skipti sem ég miðla upplýsingum þá geri ég það hérna út í skóla..
En ekki ætla ég að teppa tölvuna hérna meira þar sem kennararnir bíða í röðum eftir þvi að fá að semja prófin sín...
Andri kveður, út..
Posted at 2/9/2005 12:45:26 pm by andribergmann
Permalink